olgerdin

Borg brugghús er nýtt brugghús Ölgerðarinnar

04.06.2010 | 13:13

Ölgerðin hefur framleitt bjór frá árinu 1913. Nú opnar Ölgerðin brugghús (micro-brewery), sem hlotið hefur nafnið Borg en eins og kunnugt er bjó Egill Skallagrímsson, mesti bjóráhugamaður Íslands fyrr og síðar á Borg á Mýrum.
Fyrsti bjórinn frá Borg brugghúsi er kominn á markað. Bjórinn heitir Bríó og er bruggaður sérstaklega fyrir Ölstofu Kormáks og Skjaldar og er eingöngu fáanlegur þar.

Í Borg Brugghúsi fá hæfileikar og sköpunarkraftur margverðlaunaðra bruggmeistara Ölgerðarinnar virkilega að njóta sín. Hver lögun er mun minni en öllu jöfnu og það gefur bruggmeisturum færi á að þróa og prófa spennandi nýjar tegundir. Borg brugghús státar af aldagömlum aðferðum sem beitt er af yfirburða þekkingu. Í Borg brugghúsi er engin sjálfvirkni og öllu ferlinu því handstýrt af bruggmeisturunum. Borg brugghús mun kynna margar bjórtegundir sem ekki hefur verið mögulegt að brugga áður og hefur það markmið að kynna landsmönnum bjór – eins og bjór á að vera.

Fyrsti bjórinn frá Borg

Nú kynnir Borg brugghús fyrsta bjórinn sem þar er framleiddur. Bjórinn nefnist Bríó og er bruggaður sérstaklega fyrir Ölstofu Kormáks og Skjaldar og er aðeins fáanlegur þar. Bragð og séreinkenni Bríós hafa verið þróuð í samvinnu við eigendur og nokkra velunnara Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Bríó er svokallaður pilsner-bjór en ólíkt því sem margir Íslendingar halda er pilsner ekki léttöl, heldur ljós lagerbjór frá borginni Pilsen í Bæheimi (í vestanverðu Tékklandi). Þessi bjórstíll leit fyrst dagsins ljós á miðri 19. öld og varð svo vinsæll, að megnið af þeim bjór sem drukkinn er í dag er á einn eða annan hátt byggður á þessum stíl.

Notað er þýskt humlayrki, Mittelfruh frá Hallertau í Bavaríu, í bjórinn. Þessi humlar eru margrómaðir og ævafornir, einkum þekktir fyrir að gefa bjór einkennandi bragð og ljúfa lykt, en flestir nútímaneytendur þekkja lítið til bragðs eða lyktar af humlum, þar eð þeir eru nú til dags einkum og aðallega notaðir í bjór til að gera hann beiskan. Auk humla er notað ljóst pilsen malt frá Svíþjóð, vatn úr Gvendarbrunnum og undirgerjandi ger.

 
Hvers vegna Bríó?

Að sögn Kormáks og Skjaldar er nafnið tileinkað góðum manni sem féll frá haustið 2009 og hafði viðurnefnið „bríó“. Orðið sjálft er úr söngtexta og er lýsingarorð sem merkir: Sá sem nýtur lífsins lystisemda og lætur áhyggjur hversdagsins ekki trufla það. Sá sem bragðar Bríó bjór getur sagt með góðri samvisku: Svona er að vera bríó!

Til baka

Fréttir