olgerdin

Fréttatilkynning frá Ölgerðinni

03.12.2009 | 11:44

Reykjavík 3. desember 2009


Yfirvöld þola ekki gagnrýni

Ölgerðin hefur bent á þann tvískinnung yfirvalda að kalla kókómjólk og kókópöffs undirstöðumatvæli og undanþiggja nýjum sköttum, en skattleggja þess í stað hreinan ávaxtasafa, barnamat í krukku og kolsýrt vatn á flöskum.  Til að mæta nýjum álögum og samdrætti á markaði hefur Ölgerðin tilkynnt um sársaukafullar hópuppsagnir.

Starfsmaður hjá embætti ríkisskattstjóra, sem heyrir undir fjármálaráðherra, mætti í framhaldi af þessu í sjónvarpsviðtal á Stöð 2. Þar fullyrti þessi opinberi starfsmaður að Ölgerðin ljúgi til um raunverulegar ástæður erfiðra uppsagna og taldi sig vita betur. Ölgerðin frábiður sér vangaveltur af þessu tagi. Vissulega hefur gengisfall krónunnar gert stöðu Ölgerðarinnar erfiðari, rétt eins og hjá meirihluta fyrirtækja og heimila í landinu. Það skal tekið skýrt fram að Ölgerðin er í skilum með allar sínar skuldbindingar.

Ölgerðin hefur sent bréf til Ríkisskattstjóra þar sem þess er krafist að embættið biðjist afsökunar á ummælum þessa starfsmanns og gripið verði til viðeigandi ráðstafana innanhúss. 

Yfirvöld verða að þola umræðu og gagnrýni á ákvarðanir sem varða atvinnulífið eða fólkið í landinu. Það er eðli lýðræðisins. Íslensk fyrirtæki eiga ekki að þurfa að sæta  árásum af hálfu hins opinbera fyrir það eitt að bera hönd fyrir höfuð sér.  Slíkt er misbeiting á ríkisvaldinu.

Ölgerðin var stofnuð árið 1913. Tveimur árum eftir stofnun Ölgerðarinnar bönnuðu yfirvöld helstu framleiðsluvöru fyrirtækisins þegar þau settu á áfengisbann í landinu. Því banni lauk ekki að fullu fyrr en árið 1989 en Ölgerðin lifði af þá tilraun yfirvalda til að hafa vit fyrir almenningi.

Ölgerðin ber ekki kvíðboga fyrir framtíðinni en vill fá frið frá skemmandi inngripi yfirvalda gegn einstökum iðngreinum, hvað þá einstökum fyrirtækjum.

---
Nánari upplýsingar um Ölgerðina veitir
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar
412 8000
 

Til baka

Fréttir