olgerdin

Egils Malt og Appelsín

22.12.2009 | 08:52

Ölgerðin Egill Skallagrímsson var stofnuð árið 1913 og fyrsti drykkurinn sem fyrirtækið framleiddi var hið eina sanna Egils Maltextrakt. Appelsínið kom til sögunnar hjá Agli 1955 og fljótlega upp úr því varð til sú skemmtilega hefð að blanda drykkjunum tveimur saman. Ekki er vitað hverjum datt það í hug eða hvers vegna, en líklegt að það hafi verið til þess að drýgja maltið, sem var álitið munaðarvara á þessum tíma. Ýmsar hefðir hafa skapast í kringum hátíðarblönduna og fólk hefur misjafnar skoðanir á því hver hlutföllin eiga að vera. Þá þykir mörgum skipta máli hvernig kanna er notuð, hvort drykkurinn á að standa í ákveðinn tíma fyrir neyslu og síðast en ekki síst eru mjög skiptar skoðanir þegar kemur að froðunni.

Mörgum finnst drykkurinn njóta sín best með þykkum froðuhaus í glærri glerkönnu. Bent hefur verið á að ef kannan hefur verið þvegin með öðru leirtaui er hætta á að froðan endist verr. Því sé best að þvo könnuna eina og sér og skola vel og vandlega. Þá sitji froðuröndin eftir í könnunni og segi til um hversu oft var hellt úr henni. Það sama gildir með glös undir jólaöl og bjór - ef glösin eru alveg fitulaus þá lifir froðan lengur og froðurákirnar sanna það. Og svo er stundum spurt að því hvoru eigi að hella á undan. Skiptir það máli? Í bæklingi frá Ölgerðinni segir, að ef appelsíninu er hellt út í maltið geti froðan orðið efiðari viðureignar. Stafrófsröðin sé því líklega best; fyrst appelsín og síðan malt. Þeir sem gefi sér góðan tíma helli reyndar gjarnan maltinu fyrst og láti það standa í fjórar eða fimm mínútur og bæti appelsíninu svo rólega saman við. Í lokin sé svo smáskvetta af malti látin buna beint ofan í könnuna til að froðan verði þykk og góð.

Til baka

Fréttir