olgerdin

70 ára samstarf

28.12.2009 | 13:46

Samstarf Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og K.K. í Vestmannaeyjum hófst þann 18. desember 1939 með undirritun samnings sem enn er til! Það voru Tómas Tómasson stofnandi Ölgerðarinnar og Karl Kristmannsson, faðir Kristmanns núverandi eiganda Karl Kristmannssonar, sem skrifuðu undir þennan samning. Í tilefni 70 ára samnings þessarra tveggja fyrirtækja bauð K.K. nokkrum starfsmönnum Ölgerðarinnar til veislu út í Eyjum. Ölgerðin færði þeim hjónum, Kristmanni og Kristínu, blómvönd og vatnslitamynd eftir Karólínu Lárusdóttir sem heitir Báturinn.

Til baka

Fréttir