olgerdin

Þorrabjórinn kominn

22.01.2010 | 12:50

Ölgerðin sendir þorrabjór í vínbúðir og á veitingastaði í dag  á bóndadaginn sem markar upphaf þorra. Þorrabjórinn er að þriðja hluta gerður úr íslensku byggi sem er ræktað á bænum Belgsholti í Melasveit á Vesturlandi. 
 
Þorrabjórinn er 5,6% að styrk og er í stíl við þýskan festivalbjór. Auk íslenska byggsins sé í honum Pilsen korn og nokkuð af Munchen maltkorni, sem gefi honum ögn dekkri lit en algengustu lagerbjórum. Humlarnir í Þorrabjór séu svokallaðir aromahumlar, eða ilmhumlar, sem séu ekki eins bitrir og venjulegir humlar.

Til baka

Fréttir