- Þú ert hér: olgerdin.is
- um ölgerðina
- framleiðsluvörur
- safar og þykkni
Safar og þykkni
Ölgerðin hefur alla tíð lagt mikla áherslu á, að bjóða upp á fjölbreytta flóru vara. Hluti af þeirri flóru eru safar og þykkni, hefur hlutur þeirra farið sístækkandi undanfarin ár, enda uppi kröfur í samfélaginu um sífellt hollari kost.
Það hefur þekkst frá ómunatíð að kreista safa úr ávöxtum og er erfitt að henda reiður á hvenær mannkynið tók fyrst upp á slíku. Í dag er ávaxtasafi, eða djús, nokkuð misjafn að gerð. Flestir safar eru í raun unnir úr þykkni að einhverju leyti og blandaðir vatni að einhverju leyti. Í marga safa er bætt við sykri eða sætuefnum. Ávaxtasafar eru þó að öllu jöfnu nokkuð sætir en fer það að vísu eftir því hvaða ávextir eiga í hlut hverju sinni. Hið sama gildir um sýrustig þeirra. Algengast er að fá safa úr appelsínum, eplum, ananas, greipum, sítrónum, tómötum og öðrum berjum.
Ölgerðin framleiðir nokkrar tegundir af söfum og þykknum, þar sem höfuðáhersla er lögð á gæði.
Sól: Sólarsafarnir eru hrein náttúruafurð, fengnir úr nýpressuðum ávöxtum. Engu er bætt og ekkert fjarlægt og þannig eru tryggð gæði safans. Vandfundinn er sá safi sem er betri en Sólarsafinn á markaðnum í dag. Safinn er hvort tveggja í senn, einstaklega hollur og bragðgóður.
Flórídana: Flórídana er hollur og bragðgóður safi, unninn úr fyrsta flokks ávöxtum og grænmeti. Hægt er að fá Flórídana í bæði fernum og brúsum.
Egils Þykkni: Egils Þykkni hefur verið framleitt síða 1974. Hægt er að fá Egils Þykkni í mörgum bragðtegundum, hvort heldur sem er með eða án sykurs.



