- Þú ert hér: olgerdin.is
- um ölgerðina
- framleiðsluvörur
- sterkt áfengi
Áfengi
Góður bar inniheldur yfirleitt úrval bjóra og vína, ásamt algengum sterkum drykkjum eins og vodka, romm, gin, tekíla og viskí. Drykkirnir geta verið blandaðir saman þegar þeir eru bornir fram til að gera hanastél („kokkteil“). Smáir skammtar af óblönduðu áfengi (skot) eru líka algengir, þar sem sætir bragðbættir drykkir og tekíla eru yfirleitt algengastir. Allir drykkir sem innihalda vínanda teljast vera áfengir drykkir, en samkvæmt íslenskum lögum teljast allir drykkir sem innihalda minna en 2,25% vínanda (af rúmmáli) ekki vera áfengi og eru því undanskildir skatti og gjöldum sem lögð eru á slíka drykki.
Áfengi hefur verið notað síðan í fornöld af mörgum samfélögum víðsvegar um heiminn, sem hluti af daglegu fæði, í hreinlætis- eða læknisfræðilegum tilgangi, sem slakandi og sælugefandi áhrifavaldur, sem vímugjafi, sem innblástur til lista, sem ástarlyf, og af öðrum ástæðum. Sum not hafa tengst táknrænni eða trúarlegri merkingu, sem dæmi í grískri trú í alsæluhelgisiðum Dionysusar, vínguðsins; í hinu kristna kvöldmáltíðarsakramenti; og páskahátíð gyðinga.
Ölgerðin er stærsti framleiðandi landsins á sterku áfengi. Sterkt áfengi (yfir 18%) er framleitt með eimingu gerjaðra afurða, sem eykur vínandamagn og eyðir út sumum aukaefnum sem verða til við gerjun.
Brennivín: Hið séríslenska Brennivín á sér marga aðdáendur, þ.á.m. Dave Grohl söngvara Foo Fighters og fyrrum trommara Nirvana. Enda er Brennivín með einstakt bragð og er t.d. algjörlega ómissandi í þorrablótum.
EldurÍs Vodka: EldurÍs vodka hefur fyrir löngu skapað sér sérstöðu meðal íslenskra vodkategunda.
Reyka Vodka: Íslenskt vatn hentar einstaklega vel til að búa til vodka, sökum hreinleika síns, og Reyka vodka er þar af leiðir einstaklega bragðgott vodka. Reyka er eina vodkað sem er eimað af vörumerkjum Ölgerðarinnar.
Tinda Vodka: Tinda vodka hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarið, enda hefur þar haldist í hendur hagstætt verð sem og gott vodka.
Tópas skot: Þessi vinsælu skot eru búin til úr annars vegar hinu þekkta sælgæti Tópas og hins vegar íslenskum vodka. Þessi bragðgóðu vodkaskot hafa náð að festa sig á börum og skemmtistöðum hérlendis, enda bragð sem Íslendingum fellur í geð og þeir þekkja mæta vel.
Ópal skot: Hið sama gildir um Ópal skotin og Tópas skotin.
Nammiskot: Nammiskot voru fyrst framleidd 2008 og þá í þremur bragðtegundum, Grænn frostpinni, Gulur boxhanski og Rauður kóngabrjóstsykur.
Eden eplaskot: Eden eplaskot er sætur drykkur og er sérstaklega góður með bjór.



