• Innra net
  • Hressing
  • Hafa samband
Ölgerðin - Egill Skallagrímsson
  • Heim
  • Þjónusta
  • Vörur
  • Um Ölgerðina
  • Vinnustaðurinn
  • Sagan
  • Dótturfélög
  • Stefnur
  • Stjórn
  • Samfélagsábyrgð
  • Framtíðarsýn
  • Gildi
  • Starfsmannaskrá
olgerdin.is > Um Ölgerðina > Sagan

Saga Ölgerðarinnar

Ölgerðin er eitt af stærstu og elstu fyrirtækjum landsins, en hún náði 95 ára aldri árið 2008. Um langt skeið hefur Ölgerðin átt sinn þátt í að móta drykkjar- og matarmenningu þjóðarinnar og ætla má að stærstur hluti þjóðarinnar njóti þess t.d. að drekka Egils Malt og Appelsín á jólum eða borða Ota hafragraut að morgni dags. 

Árið 2008 var tímamótaár í sögu fyrirtækisins, en þá sameinuðust Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. og heildsalan Danól hf. Bæði þessi fyrirtæki eiga sér langa og merkilega sögu.

Ölgerðin Egill Skallagrímsson verður til

Ölgerðin Egill Skallagrímsson er stofnuð 17. apríl 1913 af Tómasi Tómassyni. Hann var fæddur að Miðhúsum í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu þann 9. október 1888. Tómas starfaði í fyrirtækinu allt þar til hann lést 9. nóvember 1978. Hann var eini eigandi Ölgerðarinnar til ársins 1932, en var eftir það stærsti hluthafi og stjórnarformaður. Auk þess var hann forstjóri allt til æviloka.

Í fyrstu fór starfsemi Ölgerðarinnar Egils Skallargrímssonar fram í tveimur herbergjum í kjallara Þórshamarshússins við Templarasund í Reykjavík, en þau hafði Tómas tekið á leigu. Í dag er það hús í eigu Alþingis. Ári síðar flutti fyrirtækið í Thomsenshúsið við Tryggvagötu og við það stækkaði athafnasvæðið til muna. Árið 1917 keypti Tómas hús við Njálsgötu og á næstu árum keypti hann einnig nærliggjandi lóðir og hús við Grettisgötu og Frakkastíg, en þar reisti hann fullkomna ölgerð. Á árunum 1924-1928 voru tekin í notkun þar bæði ölsuðuhús og gerkjallari.

Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna, þá var upphaflega stefnt að ölgerð fyrst og fremst. Fyrsta framleiðsluvara Ölgerðarinnar var Egils Maltextrakt, sem nýtur enn í dag mikilla vinsælda meðal Íslendinga og telja margir að drykkurinn sé ómissandi, ásamt Egils Appelsíni, á jólum og páskum. Framleiðsla á síðarnefnda drykknum hófst á 6. áratugnum. Framleiðsla á Egils Pilsner hófst árið 1917, aðeins fjórum árum eftir stofnum Ölgerðarinnar. Síðar tók Ölgerðin að framleiða ýmis konar saftdrykki en upphaf framleiðslu á áfengum bjór má rekja aftur til stríðsáranna, en þrátt fyrir að bann lægi við framleiðslu og sölu á bjór, þá máttu breskir hermenn og síðar bandarískir engu að síður njóta hans.

Framleiðsla gosdrykkja hófst árið 1930 er Ölgerðin keypti gosdrykkjaverksmiðjurnar Síríus og Kaldá. Ölgerðin var gerð að hlutafélagi tveimur árum síðar, er það var sameinað Ölgerðinni Þór hf., sem þá hafði verið starfrækt í tvö ár. Þór hafði byggt ölgerðarhús við Rauðarárstíg en rekstur þess var lagður niður við sameininguna.

Eftir að Tómas féll frá árið 1978 ráku synir hans, Jóhannes og Tómas Agnar, Ölgerðina Egil Skallagrímsson í tæpan aldarfjórðung. Þeir ákváðu hins vegar árið 2000 að selja hlut fjölskyldunnar og var samið í árslok við Íslandsbanka-FBA, eins og Glitnir hét þá, og fjárfestingarfélagið Gildingu. Eigendaskipti urðu í apríl 2002 er Lind ehf., dótturfélag Danól ehf., keypti Ölgerðina. Rekstur Lindar var sameinaður Ölgerðinni í byrjun árs og við þann samruna jókst vöruúrval Ölgerðarinnar til muna. Árið 2007 keyptu síðan Októ Einarsson og Andri Þór Guðmundsson Ölgerðina ásamt Kaupþingi, sem síðar seldi sinn hluta til nokkurra stjórnenda fyrirtækisins.

Heildsalan Daníel Ólafsson stofnuð 1932 

Daníel Ólafsson setti á laggirnar heildsölu 1932. Rétt eins og Tómas, þá rak Daníel fyrirtæki sitt allt þar til hann lést 1948. Fyrirtækinu var ætlað að vera heildsala á hinum ýmsu sviðum og á þeim árum sem Daníel rak það, voru starfsmennirnir tveir.

Þann 1. janúar 1964 keyptu Kristinn Friðriksson, eiginkona hans Anna Einarsdóttir og Einar Friðrik Kristinsson ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu Októsdóttir, rekstur Daníels Ólafssonar ehf., en í millitíðinni hafði fyrirtæki verið í eigu nokkurra aðila eftir að stofnandi þess féll frá. Einar og Kristinn störfuðu saman að rekstrinum allt til ársins 1984, en þá lést Kristinn. Sama ár keyptu Einar og Ólöf hlut Kristins og Önnu í Danól, en það nafn tók að festast við fyrirtækið upp úr miðjum 9. áratugnum. Um það leyti byrjaði fyrirtækið að kaupa upp smærri og stærri samkeppnisaðila í innflutningsgeiranum.

Eitt þeirra fyrirtækja sem var keypt, var heildverslunin Lind, en Lind var gerð að dótturfélagi Danól ehf. Síðar keypti Lind Ölgerðina Egill Skallagrímsson og þar með voru komin tengsl milli fyrirtækjanna Danóls og Ölgerðinnar Egils Skallagrímssonar.

Sameining

Í byrjun árs 2008 voru loks Danól og Ölgerðin Egill Skallagrímsson sameinuð og úr varð eitt allra stærsta fyrirtæki landsins á sínu sviði, með samanlagðan aldur upp á 190 ár. Nafn hins sameinaða fyrirtækis skyldi vera Ölgerðin Egill Skallagrímsson og er starfsemi þess ákaflega víðfem. Með langa sögu og ríka hefð að baki sér ætlar Ölgerðin að ná miklum árangri á komandi árum og tryggja að viðskiptavinir sem og neytendur geti áfram treyst á framúrskarandi vörur og einstaka þjónustu.

Ölgerðin í nýtt hús

Bæði Danól og Ölgerðin Egill Skallagrímsson hafa verið staðsett í Reykjavík allt frá upphafi. Eins og áður segir, þá var Ölgerðin fyrst til húsa í Templarasundi en flutti nokkrum sinnum á næstu áratugum. Lengst af fór starfsemi fyrirtækisins fram annars vegar á Njálsgötu og hins vegar í Þverholti. Árið 1977 var Ölgerðinni úthlutað lóð í nýju hverfi við Grjótháls og ári síðar var grunnur lagður að nýju og stærra húsi. Þangað flutti fyrirtækið 1988 og rúmum áratug síðar, 1999, var tekið í notkun nýtt ölsuðuhús við hlið verksmiðjunnar en það er meðal fullkomnustu ölsuðuhúsa í Evrópu.

Frá árinu 1964 fór rekstur Danól fram í Vonarstræti, en þá tóku stjórnendur fyrirtækisins þá ákvörðun að einbeita sér að sölu matvöru. Árið 1980 flutti Danól í nýtt og stórt hús að Vatnagörðum, en nokkrum árum síðar var ráðist í að byggja nýtt hús á næstu lóð við hliðina á og var það fullbúið 1986. Þar var í fyrsta skipti aðstaða fyrir frystivörur í u.þ.b. 30 fermetra frysti ásamt 750 palla rekkavæddum lager. Árið 1992 var svo hafist handa við að reisa eitt stærsta og fullkomnasta vöru- og dreifingarhúsnæði í heildsölugeiranum á Íslandi á þeim tíma. Í desember 1993 var flutt inn í fullbúið 2500 palla vöruhús, sem hýsti einnig 300 palla frysti. Það var stækkað 7 árum síðar og hýsir nú 4500 palla og 650 palla frysti.

Í september 2009 var nýtt húsnæði Ölgerðarinnar tekið í notkun með pompi og prakt. Húsið er 12.500 fm að stærð og hýsir hátt í 13.000 palla, í stóru vöruhúsi sem inniheldur bæði kælda geymslu og frystigeymslu. Var þá öll starfsemin loks sameinuð á einum stað.

Um Ölgerðina

  • Sagan
  • Starfsmannaskrá
  • Dótturfélög
  • Stefna
  • Stjórnarhættir

Vinnustaðurinn

  • Starfsmannastefna
  • Atvinnuumsókn
  • Starfsmannafélagið

Þjónusta

  • Þjónustuver
  • Þjónustudeild
  • Hafa samband
  • Ábendingar og fyrirspurnir
Ölgerðin - Eigill Skallagrímsson
Grjóthálsi 7-11 | 110 Reykjavik
Sími: 412 80 00 | Fax: 412 80 01
olgerdin@olgerdin.is
Kt. 420369 7789 | Vsk nr.11211