olgerdin

Stefna Ölgerðarinnar

Gæðastefna 

Gæði eru einn mikilvægasti hluti starfsemi okkar. Hugsunin um gæði á að vera samofin öllum okkar aðgerðum. Til að viðhalda og efla þá gæðaímynd sem Ölgerðin hefur byggt upp verðum við að tryggja að:

  • Allar vörur okkar séu fyrsta flokks og að því verði aldrei fórnað.
  • Öll vörumeðhöndlun sé í samræmi við bestu þekktu aðferðir á hverjum tíma. 
  • Við leitumst við að tryggja að heildarupplifun viðskiptavina af samskiptum við okkur fari fram úr væntingum þeirra. 
  • Að starfsemi okkar sé í samræmi við lög og reglugerðir og að við uppfyllum þær kröfur sem gerðar eru til okkar af viðskiptavinum og hagsmunaðilum. 
  • Að alltaf sé leitað leiða til umbóta, því við lærum af mistökum og hugsum án takmarkana.

Umhverfisstefna

Meginhlutverk Ölgerðarinnar er að þróa og selja vörur sem eru betri fyrir neytandann. Partur af lífsgæðum neytanda er umhverfið og því mikilvægt að starfemi Ölgerðarinnar sé í eins mikilli sátt við umhverfið og hægt er. Þetta gerum við með því að:

  • Uppfylla lög og reglugerðir um umhverfismál og starfsmenn séu meðvitaðir um mikilvægi verndun umhverfisins í aðgerðum sínum.
  • Forðast alla sóun við meðhöndlun og notkun hráefna og umbúða. Endurnota og endurvinna það sem fellur til í rekstri eins og hægt er og farga öðru á viðeigandi hátt. 
  • Leitast við að nota efni, rekstrarvörur og umbúðir sem eru umhverfisvænar, aldrei þó á kostnað öryggis framleiðsluvara Ölgerðarinnar. 
  • Mengunarvarnir fyrirtækisins séu í samræmi við lög og reglugerðir og þess sé gætt við allar breytingar og nýbyggingar að taka mið af líklegum framtíðarkröfum á þessu sviði. 
  • Leita stöðugt leiða til að minnka notkun umbúða og orku við framleiðslu, sölu og dreifingu vara fyrirtækisins.

Auglýsingastefna v. barna

Hafa skal sérstaka aðgát þegar um er að ræða auglýsingar eða annað markaðsstarf sem höfða á sérstaklega til barna.

  • Ekki skal gera eða birta auglýsingar sem höfða eiga sérstaklega til barna yngri en átta ára, þar sem börn undir þeim aldri hafa ekki þroska til að meta skilaboð auglýsinga.
  • Ekki skal nota það traust sem börn bera til foreldra, kennara og þjálfara til að koma skilaboðum á framfæri í auglýsingum.
  • Skilaboðin í auglýsingunum skulu ekki grafa undan áhrifavaldi foreldra og ekki skal hvetja börn með beinum hætti til að fá foreldra sína til að kaupa ákveðnar vörur.
  • Ekki skal birta auglýsingar sem höfða eiga sérstaklega til barna á þeim tíma sem ætla má að börn séu ein þegar þau skoða/horfa á viðkomandi auglýsingu, t.d. með barnaefni snemma morguns.
  • Þess sé gætt að líklegast sé að markaðsefnið fari fyrst um hendur foreldra sem geta þá ákveðið hvort þeir afhenda börnum sínum það.
  • Ekki skal sýna börn við hættulegar aðstæður í kynningarefni.

Um Ölgerðina