- Þú ert hér: olgerdin.is
- fréttir
Brennivín á Þorra
01.02.2010 | 08:22
Brennivín hefur verið drukkið með þorramat býsna lengi og í raun algjör skylda með hákarli. Brennivín er unnið eftir alíslenskri uppskrift sem hefur verið óbreytt frá upphafi. Það er áberandi keimur af kúmeni en í brennivín er notaður kornspíri og ýmis bragðefni ásamt íslensku vatni.
Brennivín er mest drukkið á tvennan hátt, annars vegar blandað í Pepsi og hefur verið drukkið þannig frá upphafi, en einnig er Brennivín vinsælt sem snafs og þá ber að hafa það ískalt og hnausþykkt. Gott getur verið að setja flöskuna í frysti tímanlega fyrir notkun.
Upphaflega var það Áfengisverslun ríkisins sem hóf framleiðslu á Brennivíni árið 1935, eftir að áfengisbanni var aflétt hér á landi að öðru leyti en sem viðkemur bjór, en árið 1992 var framleiðslan seld.
Við hönnun miðans, sem hefur verið eins öll þessi ár, var tekið mið af því að hann átti að sporna við áfengisdrykkju og hafa fælingarmátt, þar af leiðir var hann eins óaðlaðandi og mögulegt var. Sökum þessa svarta miða hefur Brennivín oft verið nefnt Svarti dauði.
Að lokum er hér uppskrift af skemmtilegum kaffidrykk:
Hellir Merrild kaffi í bolla.
1 króna sett í bollann.
Brennivíni hellt út þar til kaffið er orðið svo þunnt, að það sést orðið í krónuna.



