olgerdin

Tuborg Julebryg besti jólabjórinn

25.11.2009 | 08:49

 Jólabjórinn vinsæli frá Tuborg hlaut hæstu meðaleinkunn í árlegri jólabjórsmökkun DV. Fast á hæla Tuborg fylgir Egils malt jólabjór en þessir tveir báru af að mati fimm manna dómnefndar sem DV skipaði.

Smökkunin fór þannig fram að allir bjórarnir, 12 talsins, voru númeraðir og bornir fram í 10 sentilítra plastglösum, einn í einu. Bjórarnir voru geymdir í kæli yfir nóttina en teknir út þremur tímum fyrir smökkun. Með því var tryggt að hitastig bjóranna yrði sambærilegt. Dómnefndin fékk ekki að vita hvaða bjór átti í hlut hverju sinni. Hver og einn meðlimur gaf svo hverjum bjór einkunn og ummæli. Þrátt fyrir að dómnefndin, bæði reyndir og óreyndir smakkarar, hafi í grófum dráttum verið sammála um hvaða bjórar þættu bestir, var nálgunin og eðli umsagnanna þeirra æði misjöfn.

Ítarlega úttekt á jólabjórunum er að finna í DV í dag.

Til baka

Fréttir