- Þú ert hér: olgerdin.is
- fréttir
Bjallan glymur í Bjórskóla Ölgerðarinnar
10.12.2009 | 19:05
Bjórskóli Ölgerðarinnar tekur formlega til starfa í þessari viku. Í Bjórskólanum sitja 20 nemendur hverju sinni, í eina kvöldstund og fræðast um bjór, uppruna hans, fjölbreytileika, framleiðsluaðferðir og hráefni. Yfirkennari í Bjórskólanum er Úlfar Linnet sem leiðir nemendur í allan sannleika um bjór og bjórmenningu.
Í Bjórskólanum fá nemendur að skyggnast inn í brugghús Ölgerðarinnar og einnig í nýtt smábrugghús (micro-brewery). Í smábrugghúsinu hefur bruggmeistari Ölgerðarinnar frjálsar hendur með þróun á nýjum forvitnilegum tegundum sem verða meðal annars sérbruggaðar fyrir valda veitingastaði.
Nám í Bjórskólanum kostar 4.900 krónur en rétt er að benda á að það er ekki lánshæft. Þótt ekki séu formleg próf í skólanum þurfa nemendur að innbyrða nokkuð af fjölbreyttu námsefni. Þeir þurfa því að gera ráðstafanir varðandi heimferð, þar sem akstur og áfengi fara aldrei saman. Heimalærdómur og símenntun er síðan á ábyrgð hvers nemanda.
Bjórskólinn er öllum opinn sem náð 20 ára aldri og einungis 20 nemendur verða í kennslustofunni í senn. Hægt er að kaupa gjafakort í Bjórskólann, en skólagjöld eru aðeins 4.900 krónur. Bjórskólinn er staðsettur í nýjum húsakynnum Ölgerðarinnar að Grjóthálsi 7-11. Kennsla fer fram alla fimmtudaga frá kl. 20 – 23.00 en hópar geta óskað eftir kennslu á öðrum dögum.
Smelltu hér til að komast á heimasíðu Bjórskólans.



