olgerdin

Vín mánaðarins í Fríhöfn Keflavíkur

11.12.2009 | 10:01

Í desember eru vín mánaðarins í Fríhöfninni Keflavík léttvín frá Ölgerðinni. Að þessu sinni urðu fyrir valinu 4 vín, sem er hvert á sinn hátt einstakt.
Tvö þeirra koma frá Ástralíu, Rosemount Shiraz og Rosemount GTR, en hin tvö koma frá Veneto svæðinu á Ítalíu, Masi Campofiorin og Masi Masianco. Um er að ræða tvö rauðvín og tvö hvítvín.
Hiklaust er hægt að mæla með þessum gæðavínum og henta þau öll einstaklega vel með jólasteikinni. Því er upplagt að grípa þessi vín með sér, ef þú átt leið um Fríhöfnina.

Til baka

Fréttir