Drykkjarvara
-
Bjór
Ölgerðin Egill Skallagrímsson er elsta ölgerð landsins og framleiðir marga af vinsælustu íslensku bjórunum, t.d. Egils Gull. Einnig flytur Ölgerðin inn þekkt vörumerki í bjór, t.d. Tuborg og Guinness.
-
Cider
Cider er áfengur drykkur unninn úr ávöxtum. Ölgerðin er með umboð tveggja slíkra vörumerkja, annars vegar Kopparberg og hins vegar Somersby.
-
Gos
Mörg af þekktustu gosdrykkjavörumerkjum landsins eru frá Ölgerðinni, t.d. Egils Appelsín og Egils Malt. Einnig framleiðir Ölgerðin Pepsi og Pepsi Max.
-
Íþróttadrykkir
Íþróttadrykkir hjálpa íþróttamönnum í endurheimt. Ölgerðin flytur inn Gatorade, sem er einn allra vinsælasti íþróttadrykkur í heiminum.
-
Kaffi & Te
Ölgerðin flytur inn margar tegundir af gæðakaffi, frá vörumerkjum á borð við Merrild, Nescafe, Senseo, Dolce Gusto og Illy .
-
Léttvín
Léttvín skiptast í nokkra flokka, rauðvín, hvítvín, freyðivín, kampavín og rósavín. Ölgerðin er einn stærsti innflytjandi landsins á léttvínum.
-
Orkudrykkir
Orkudrykkir auka einbeitingu og innihalda efni sem örva. Ölgerðin bæði framleiðir og flytur inn orkudrykki, t.d. Egils Orku og Red Bull.
-
Safar & Þykkni
Safar eru unnir úr ávöxtum og grænmeti. Ásamt Egils þykkni framleiðir Ölgerðin safa og flytur einnig inn, t.d. Floridana og Fruit Shoot.
-
Sterkt áfengi
Áfengi sem er brennt eða eimað flokkast sem sterkt. Ölgerðin flytur inn mörg af þekktustu vörumerkjum sterks áfengis, t.d. Smirnoff, Johnnie Walker og Baileys.
-
Vatn
Vatn er líkamanum afar mikilvægt. Ölgerðin framleiðir fjölda vatnsdrykkja, bæði með og án kolsýru, t.d. Kristal, Iceland Spring og Kristal +.




