Áfylling sjálfssala
Við leitum eftir duglegri og jákvæðri manneskju til að sjá um áfyllingu á sjálfssölum fyrir Ölgerðarinnar.
Hlutverk og ábyrgð:
- Áfylling sjálfssala
- Að hámarka sölutækifæri og lágmarka rýrnun í samvinnu við viðskiptastjóra
- Dagleg þrif á tækjum
- Önnur tilfallandi störf í samráði við viðskiptastjóra sjálfssala
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og góð framkoma
- Góð samskiptahæfni
- Samviskusemi og jákvæðni
- Geta unnið undir álagi
- Reglusemi og snyrtimennska
- Bílpróf
- Hreint sakarvottorð
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember nk.
Kostur ef umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.