Sölumaður í fyrirtækjaþjónustu
Ölgerðin leitar eftir jákvæðri og duglegri manneskju til að starfa sem sölumaður í fyrirtækjaþjónustu Ölgerðarinnar. Fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Fyrirtækjaþjónusta Ölgerðarinnar annast sölu og þjónustu drykkjarlausna meðal annars til fyrirtækja.
Hlutverk og ábyrgð
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Tilboðsgerð, pantanir og eftirfylgni
- Samstarf, samskipti og heimsóknir til viðskiptavina
Hæfniskröfur
- Rík Þjónustulund, söluhæfileikar, áreiðanleiki
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni í samskiptum og góð framkoma
- Frumkvæði, fagmennska í starfi og þjónustulund
- Góð íslenskukunnátta og tölvufærni
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember nk.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um