Vinnustaðurinn

Lykillinn að velgengni fyrirtækja er fólginn í mannauði þeirra. Markmið Ölgerðarinnar er því að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfsfólk Ölgerðarinnar stefnir samstíga í átt að framtíðarsýn fyrirtækisins, að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsmanna gerir vinnustaðinn skemmtilegan.

 

 

Jafnréttismál

 

Jafnréttisstefna er skuldbinding Ölgerðarinnar um stöðugar umbætur í jafnréttismálum og fjölbreytileika. Horft er til ákvæða laga nr. 150/2020 um jafnan rétt kynjanna og laga nr. 86/2019 um bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, efnahags, litarháttar, ætternis, skerðingar á starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar.

 

Sjá nánar um jafnréttisstefnu Ölgerðarinnar

 

 

Fræðsla og þjálfun

 

Starfsmenn Ölgerðarinnar er dýrmætasta auðlind fyrirtækisins. Það er mikið kappsatriði að starfsmönnum líði vel við störf sín og að þeir vaxi og dafni í starfi. Því er séð til þess að starfsmenn njóti góðrar þjálfunar og að góður árangur í starfi skili sér í aukinni ábyrgð og umbun innan fyrirtækisins.

 

Fræðsluþörf innan fyrirtækisins er reglulega greind með rýnihópum og viðtölum innan Ölgerðarinnar. Innan fyrirtækisins er boðið upp á öfluga rafræna fræðslu þar sem starfsmenn geta sótt fræðslu á þeim tíma og þeim hraða sem hentar hverjum og einum. Þar hafa starfsmenn yfirsýn yfir það sem er í boði og hvað þeir hafa nú þegar tekið.

 

Þróun í starfi

 

Saga Ölgerðarinnar spannar yfir 100 ár og hjá okkur eru starfsmenn sem hafa unnið hjá Ölgerðinni í fjölda ára.  Verkefnin eru fjölbreytt og leggur Ölgerðin mikið upp úr því að leyfa starfsfólki sínu að vaxa í starfi.  

 

 

Öflugt félagslíf

 

Ölgerðin er skemmtilegur vinnustaður sem býr yfir stórum hópi með víðtæka þekkingu og reynslu. Starfsmannafélagið Mjöður heldur uppi öflugu félagslífi og stendur fyrir fjölbreyttum uppákomum og fleira skemmtilegu. Starfsfólk Ölgerðarinnar finnur mörg tækifæri til að koma saman og gleðjast og má þar nefna, starfsmannadaginn JÁ-daginn, bjórdaginn J-daginn, árshátíð, þjóðhátíð í Ölgerðinni og fleira.

 

 

Mannauðsstefna og gildi

 

Stjórnendur Ölgerðarinnar vita að lykillinn að velgengni fyrirtækisins felst í mannauðnum. Markmið fyrirtækisins er því að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Kynntu þér mannauðsstefnu og gildi Ölgerðarinnar.

 

Sjá nánar um mannauðsstefna Ölgerðarinnar

 

 

Umsókn um starf

 

Langar þig að vera hluti af frábærum starfsmannahóp Ölgerðarinnar? Við hvetjum þig til að leggja inn umsókn um starf. 

 

Almenn starfsumsókn

 

VR Fyrirmyndarfyrirtæki Jafnlaunavottun BSI Vottanir LEED Vottanir