9. janúar 2026
Innköllun á NAN þurrmjólk
Danól, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur hafið innköllun á NAN Expert Pro HA 1 og NAN Pro 1 þurrmjólk ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
sjálfbærni
Ölgerðin fær framúrskarandi einkunn í sjálfbærnimati Reitunar, en félagið hefur farið í gegnum UFS mat á vegum Reitunar frá árinu 2021. Ölgerðin fékk 86 stig af 100 mögulegum og fellur undir flokk A3 ásamt fimm öðrum skráðum félögum á markaði.
Í samanburði við aðra íslenska útgefendur er Ölgerðin yfir meðaltali í öllum flokkum með 86 stig, en meðaltal markaðarins er 73 stig, sem fellur undir flokk B2.
Starfsfólk Ölgerðarinnar lítur á sjálfbærni sem langtímaverkefni og er stolt af þeirri vegferð sem fyrirtækið er á.
Ölgerðin þakkar Reitun fyrir að fylgja þessum mikilvæga málaflokki eftir með vönduðu mati.
::