11. september 2026
Innköllun á River hrísgrjónum úr verslunum Samkaupa
Danól, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur ákveðið að innkalla River hrísgrjón sem seld voru í Samkaupu ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
fyrirtæki
Við hjá Ölgerðinni erum afar stolt af því að vera nú skráð fyrirtæki í íslensku kauphöllinni. Það er gaman að segja frá því að gömul bjalla sem stofnandinn, Tómas Tómasson, notaði á sínum tíma til hringja inn matar- og kaffitíma starfsfólksins fékk það hlutverk núna í vikunni að hringja inn þessi mikilvægu tímamót í sögu fyrirtækisins. Hlutabréfin voru mjög eftirsótt í útboðinu þar á undan og við bjóðum um 7.000 nýja hluthafa velkomna til liðs við okkur og þökkum traustið. Þessi mikli áhugi er okkur mikil hvatning til að halda áfram af enn meiri krafti og gera betur á öllum sviðum í framtíðinni.