20. maí 2026
Ölgerðin Recognized as a Model Company of the Year 2026
Ölgerðin has been awarded the Model Company of the Year 2026 recognition. The award ceremony took place at Harpa last We ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
fyrirtæki
Tæplega 7.000 nýir hluthafar bætast í hóp eigenda Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson eftir vel heppnað hlutafjárútboð fyrirtækisins sem lauk föstudaginn 27. maí 2022. Rúmlega fjórföld eftirspurn var eftir hlutafé í fyrirtækinu þar sem almenningur keyptu hlutafé á genginu 8,9 kr. á hlut og stærri fjárfestar buðu 10,03 kr. á hvern hlut.
Alls bárust áskriftir fyrir rúmlega 32 ma. kr. en boðnir voru 827,3 milljónir af áður útgefnum hlutum. Í sölubók A var rúmlega þreföld eftirspurn og fimmföld í tilboðsbók B. Seljendur samþykktu áskriftir fyrir 29,5% af hlutafé félagsins og var söluandvirði 7,9 ma. kr.
„Við erum í skýjunum með þessar frábæru móttökur sem færa stóran hluta fyrirtækisins í eigu þjóðarinnar. Við vonuðumst vissulega eftir góðum viðbrögðum, en þau fóru fram úr okkar björtustu vonum og sýna að viðskiptavinir og fjárfestar hafa trú á fyrirtækinu, vörum okkar, þjónustu og framtíðarsýn,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mikið af ungu fólki keypti hlut í fyrirtækinu, sem sýnir okkur svart á hvítu hversu stóran sess Ölgerðin skipar hjá þjóðinni,“ segir Andri Þór.
Fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka hafði umsjón með útboðinu og geta þátttakendur nálgast upplýsingar um úthlutun á www.kvika.is/olgerdin og nota sömu aðgangsauðkenni og þeir notuðu til að skrá áskrift sína í útboðinu. Gjald- og eindagi áskrifta er 3. júní 2022 og ráðgert er að viðskipti með hlutabréf Ölgerðarinnar hefjist fimmtudaginn 9. júní 2022.
Nánari upplýsingar:
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri, s: 412 8000 / andri.thor.gudmundsson@olgerdin.is