Störf í áfyllingu
Við leitum að ábyrgðarfullri, hraustri og duglegri manneskju til að sjá um að fylla á og framstilla drykkjarvörum Ölgerðarinnar.
We are looking for a responsible and hardworking person to stock and set up our products.
Viðkomandi manneskja er fulltrúi þeirra vörumerkja sem hún annast og ber ábyrgð á að vörurnar séu framsettar á sem söluvænlegastan hátt í verslanir á höfuðborgarsvæðinu.
The person in question is a representative of the brands and is responsible for ensuring that the products are presented in the best possible way in stores in the capital area.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að þjónusta viðskiptavini og mæta þörfum þeirra / To serve customers and meet their needs.
- Að framstilla drykkjarvöru á faglegan hátt / To produce beverages in a professional way
- Að fylla á hillur, kæla og framstillingar í verslunum / Filling shelves, refrigerators and presentations in stores
- Að hámarka sölutækifæri og lágmarka rýrnun í samvinnu við sölumenn / To maximize sales opportunities and minimize shrinkage in collaboration with salespeople
- Að tryggja fagleg samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk / To ensure professional communication with customers and colleagues.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf /Drivers licence
- Sjálfstæð vinnubrögð / Independent
- Jákvæðni, áreiðanleiki og framsækni / Positive, reliable and progressive
- Hreint sakarvottorð / A clean criminal record
Kostur ef umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 100% fullt starf.
It is an advantage if the applicant can start work as soon as possible. This position is a full-time position.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um
We encourage people of all genders to apply.‘‘