Tæknimaður í kaffiþjónustudeild hjá Ölgerðinni
Ölgerðin leitar eftir öflugri og jákvæðri manneskju í kaffiþjónustudeild til að sinna fyrirbyggjandi viðhaldi og viðgerðum á kaffivélum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum á verkstæði.
Hlutverk og ábyrgð
- Uppsetningar á kaffivélum
- Viðgerðir, viðhald og önnur verkefni tengd kaffivélum
- Önnur tilfallandi störf sem koma upp í þjónustudeild
Hæfniskröfur:
- Tækniþekking og verkkunnátta
- Áhugi á kaffi og kaffivélum kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Þjónustulund og stundvísi
- Góð íslensku- og ensku kunnátta
- Tölvuþekking og bílpróf
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 13. april. nk
Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um.