17. apríl 2026
Bera hf. birtir sjálfbærniuppgjör fyrir árið 2025
Bera hf. hefur birt sjálfbærniuppgjör sitt fyrir árið 2025, þar sem fram koma helstu niðurstöður í umhverfis-, félags- o ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
Bera hf. hefur birt sjálfbærniuppgjör sitt fyrir árið 2025, þar sem fram koma helstu niðurstöður í umhverfis-, félags- og stjórnarháttum fyrirtækisins. Uppgjörið er unnið í samræmi við VSME staðal Evrópusambandsins og byggir jafnframt á alþjóðlegum viðmiðum á borð við ESRS, GRI og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Í uppgjörinu kemur meðal annars fram að Bera hf. hefur náð verulegum árangri í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eigin reksturs frá grunnári, auk þess sem hlutfall endurnýjanlegrar orku er mjög hátt. Rafvæðing bílaflotans drífur áframhaldandi hækkun hlutfalls endurnýjanlegrar orku. Þá er jafnframt lögð áhersla á öflugt starfsumhverfi, jafnrétti og skýra stjórnarhætti.
Sjálfbærniuppgjörið veitir heildstæða mynd af áhrifum og árangri starfsemi Beru hf. og undirstrikar áframhaldandi skuldbindingu félagsins til ábyrgra og sjálfbærra rekstrarhátta. Sjálfbærniskýrsla félagsins kemur út samhliða aðalfundi þann 13. maí.