26. maí 2026
Broken Taco komið til landsins
Nýtt og litríkt taco vörumerki hefur nú bæst í vöruframboð Danól. Broken Taco sækir innblástur sinn bæði í hefðbundna me ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
matvara
Nýtt og litríkt taco vörumerki hefur nú bæst í vöruframboð Danól. Broken Taco sækir innblástur sinn bæði í hefðbundna mexíkóska matarmenningu og þá þróun sem átt hefur sér stað í taco menningu Bandaríkjanna, sérstaklega á vesturströndinni og í Texas.
Broken Taco nálgast taco heiminn með glettni, litagleði og ríkum húmor þar sem markmiðið er að gera taco kvöldið bæði bragðbetra og skemmtilegra. Á bak við vörumerkið er mikil áhersla á vöruþróun, hönnun og bragðupplifun, þar sem áhrif frá mexíkóskum börum veitingarstöðum og matarvögnum í Suður Kaliforníu hafa einnig spilað stórt hlutverk.
Í vörulínu Broken Taco má finna fjölbreytt úrval af vefjum, kryddum, salsa og sósum sem gera neytendum kleift að setja saman sitt eigið taco kvöld á einfaldan og spennandi hátt. Vörurnar einkennast af djörfum bragðsamsetningum, litríkri hönnun og skemmtilegri nálgun sem sker sig úr í hillunni.
Með Broken Taco fær taco kvöldið nýtt líf þar sem áherslan er á bragð, gleði og upplifun fyrir alla fjölskylduna.
Broken Taco vörurnar fást nú í verslunum Krónunnar.