Nýjar og safaríkar fréttir frá Flóridana!

16. október 2026

Í sumar kynntum við nýtt og ferskt útlit á Flóridana flöskunum sem gerði safana okkar enn girnilegri í hillum verslana.

Nú er komið að fernunum! Þær hafa fengið skemmtilega yfirhalningu með litríkri hönnun og brosandi ávöxtum sem gleðja augað. Við þorum að fullyrða að þetta séu með krúttlegustu ávaxtasöfum sem þið sjáið í hillunum!

Nýja útlitið gefur vörumerkinu ferskan og líflegan blæ, með skærum litum og skemmtilegum karakterum sem vekja athygli. Innihaldið er áfram í aðalhlutverki og fernurnar eru jafn handhægar og áður – fullkomnar í nestisboxið, á æfinguna, í ferðalagið eða bara þegar þig langar í eitthvað gott.

Og nú þegar haustið er gengið í garð er um að gera að huga að góðum venjum og vellíðan. Flóridana býður upp á ljúffenga safa fyrir fjölbreytt tilefni og sumar tegundir innihalda einnig vítamín, trefjar og góðgerla.

Lifið vel! 🍊