16. mars 2026
Óskar Ingi ráðinn fjármálastjóri Beru
Óskar Ingi Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Beru hf. en hann hefur starfað hjá Ölgerðinni í 10 ár. Á þeim tím ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
Óskar Ingi Magnússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Beru hf. en hann hefur starfað hjá Ölgerðinni í 10 ár. Á þeim tíma hefur hann komið að fjölbreyttum verkefnum, nú síðast á fjármálasviði þar sem hann stýrði bæði hagdeild og stafrænni tækni.
Áður starfaði Óskar hjá WOW air sem sérfræðingur í hagdeild þar sem hann vann að áætlunargerð og greiningum.
Óskar er með M.Sc.-gráðu í Management Science and Engineering frá Columbia-háskóla í New York og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
„Ég er fullur tilhlökkunar að leggja mitt lóð á vogarskálarnar við að byggja upp áframhaldandi sókn félagsins með öllu því framúrskarandi starfsfólki sem hér starfar,“ segir Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri Beru.
Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru, segir að starf fjármálastjóra krefjist í auknum mæli þekkingar á tæknilausnum og að sú þróun muni halda áfram.
„Ráðning Óskars er mikilvægt skref í átt að skilvirkara og tæknilegra umhverfi sem við viljum skapa innan Beru og dótturfélaga þar sem reynsla hans og þekking á innviðum og rekstri félagsins mun hjálpa okkur að styrkja samstæðuna enn frekar.“