Ísbúð Vesturbæjar í söluferli

17. febrúar 2026

Ákveðið hefur verið að setja Ísbúð Vesturbæjar í sölu, en ísbúðin er eitt þekktasta og rótgrónasta vörumerkið á ísmarkaði. Eigandi Ísbúðar Vesturbæjar er Kjarnavörur, dótturfélag Ölgerðarinnar.
Ísbúð Vesturbæjar rekur í dag fimm sölustaði á höfuðborgarsvæðinu og hefur yfir 22% markaðshlutdeild á markaði sem óx um tæp 8% frá árinu 2023 til 2024.
100% hlutafjár Ísbúðar Vesturbæjar stendur fjárfestum til boða í söluferlinu en óskað er eftir óskuldbindandi tilboðum fyrir föstudaginn 27. febrúar og skuldbindandi tilboðum föstudaginn 13. mars.
Nánari upplýsingar um söluna á Ísbúð Vesturbæjar veita Jónas Elvar Halldórsson (jonaselvar@grofin.is og sími 898 8080) og Ingi Karl Ingólfsson (ingi@investco.is og sími 660 1004)