21. október 2026
Boli áfengislaus
Nú er loksins hægt að njóta Bola með sínu þroskaða og þétta bragði í sannkallaðri gleðivímu. Bruggmeistararnir gefa enga ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
Fulltrúar Ölgerðarinnar tóku þátt í árlegu Partner Event JDE ásamt öðrum samstarfsaðilum fyrirtækisins. Dagskráin var bæði metnaðarfull og fjölbreytt, með áhugaverðum fyrirlestrum og fræðandi vinnustofum þar sem farið var yfir þróun á markaði, nýjungar og árangursríkar leiðir í samstarfi.
Á viðburðinum kynnti Móeiður Ása Valsdóttir, vörumerkjastjóri L'OR, viðburðinn sem Ölgerðin hélt í september, þar sem lögð var rík áhersla á upplifun, sterka vörumerkjauppbyggingu og vandaða framkvæmd. Kynningin vakti verðskuldaða athygli og var afar vel tekið af öðrum samstarfsaðilum.
Árangurinn lét ekki á sér standa – við hlutum verðlaunin „Dare to Amaze“ fyrir L'OR viðburðinn. Að auki fékk Ölgerðin tvær glæsilegar tilnefningar: annars vegar sem Partner of the Year – Retail og hins vegar sem Partner of the Year – Out of Home. Þessar viðurkenningar eru skýr staðfesting á öflugu og árangursríku samstarfi okkar við JDE.