Nýtt vörumerki Eazy - trefjar og koffín🍓

ný vara

16. apríl 2026

Eazy er splunkunýtt vörumerki skapað af fjórum ungum frumkvöðlum úr Verzlunarskóla Íslands, en drykkinn þróuðu þau í samstarfi við okkur í Ölgerðinni.

Í fyrra fengum við til okkar þau Silvíu, Ísak, Emilíu og Katrínu sem voru þá í frumkvöðlafræði áfanga í Verzló, og hjálpuðum þeim við að framleiða drykk undir vörumerkinu Eazy fyrir vörumessu í Smáralind. Í kjölfarið var ákveðið að taka verkefnið enn lengra og nú er Eazy kominn á markað og fæst í Krónunni! Eazy er með jarðarberja og límónubragði, og inniheldur 80mg af koffíni og 5gr af trefjum í hverri dós! Auk þess er Eazy án hefðbundinnar gervisætu og inniheldur D-vítamín og sink.

Frumkvöðlarnir fjórir hafa séð um allt frá nafngift, útliti og markaðssetningu, en umbúðirnar eru hannaðar af þeim með smá hjálp frá auglýsingastofunni Ennemm.

Við erum mjög stolt af þessu flotta samstarfi og hvetjum ykkur til að næla ykkur í dós af Eazy í Krónnunni og smakka þessa snilld sem þetta flotta unga fólk hefur fært okkur⚡

Gallery Image
Gallery Image