4. desember 2025
Brennivín 90 ára
Í byrjun árs var því fagnað að 90 ár voru liðin frá því að íslenskt brennivín kom á markað. Í umfjöllun Morgunblaðsins a ...
Um okkur
Fjárfestar
Vinnustaðurinn
Sjálfbærni
Hafa samband
fyrirtæki
Vaka Njálsdóttir hefur verið ráðin til starfa hjá Ölgerðinni sem vörumerkjastjóri COLLAB. Vaka starfaði áður hjá Nova í markaðsdeild og vöruþróun, þar sem hún vann að fjölbreyttum verkefnum tengdum markaðssetningu, stafrænni þróun og vöruframboði.
Þar áður var hún hjá Sony Music í Danmörku, þar sem hún sinnti ráðgjöf við útgáfu og markaðssetningu á tónlist. Vaka er með BSc gráðu í hagfræði og hefur jafnframt stundað nám í ljósmyndun.
Velgengni COLLAB hefur verið ævintýraleg frá því að drykkurinn kom á markað fyrir aðeins sex árum síðan og óhætt að segja að vörumerkið hafi slegið í gegn hjá þjóðinni. Síðustu misseri hefur Ölgerðin flutt COLLAB á erlenda markaði og hafa viðtökur þar verið góðar bæði í Danmörku og nú síðast Þýskalandi.
„Ég er spennt fyrir að takast á við nýtt hlutverk og er þakklát því trausti mér mér er sýnt með því að fela mér þetta verðmæta vörumerki. Ég hef trú á að COLLAB eigi enn mikið inni, bæði hér heima og erlendis, vegna sérkenna drykkjarins þegar kemur að sjálfbærni og beinni tengingu við íslenska náttúru og menningu. Ég hlakka til að vinna að enn glæstari framtíð COLLAB með öflugu teymi hérna hjá Ölgerðinni,“ segir Vaka.
„Innan Ölgerðarinnar er mikil vöruþróun og markaðsstarfið er kröftugt. Að fá Vöku með okkur í lið til að vinna með eitt okkar sterkasta vörumerki er frábært. Hún er öflug viðbót í sterkt teymi vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar,“ segir Elísabet Austmann, markaðsstjóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni.